Verknaður einstaklings eða kerfislægur vandi (einstaklingur vs bygging)

Gjarnan heyrist að hrun íslensks efnahagslífs sé "20 til 30 einstaklingum að kenna", eins heyrist oft þegar spillingarmál koma upp að um "persónulegan harmleik" sé að ræða. Stjórnmálamenn eru þá að leggja áherslu á að flokkurinn beri ekki ábyrgð og spillingin sé ekki vegna þeirrar samfélagsgerðar sem þeir hafa mótað. Stórtæk pólitísk spilling er spilling sem býr í samfélagsgerðinni en ekki fyrst og fremst í persónugerð einstaklinga.

Það voru ekki 20 til 30 einstaklingar sem settu Ísland á höfuðið heldur samráð og sameiginlegir hagsmunir æðstu manna í stjórnmálum og viðskiptalífi og ákveðin hugmyndafræði (pólitísk og hagfræðileg) sem tengdi þá og stóran hóp manna í samfélaginu: Nýfrjálshyggja