Túlkun, merking og spillingarlisti TI

Rannsóknarheimildir eru meðhöndlaðar einsog hlutlæg empírísk staðreynd gagnrýnislítið að öðru leiti en því að tölfræðilegt samræmi þarf að vera á milli heimilda til þess að þær séu marktækar. Heimildirnar eru ekki túlkaðar né leitað að annarri merkingu. Gagnrýni á hlutdrægni viðskiptalífsins (sem þess hóps sem spurður er álits) er vísað frá með vísan í tölfræði. Látið er einsog um hlutlægan athuganda sé að ræða en ekki pólitískan einstakling í ákveðinni samfélagslegri afstöðu, hafandi tiltekna hagsmuni af svari sínu.