Tvö vandamál:
1. Almenningur getur ekki kært spillingu því dómstólar segja þá aldrei 'aðila máls' .
2. Almenningur fær ekki upplýsingar (í gegnum upplýsingalög m.a.), við er borin 'viðskiptaleynd' .
Lausn: Almenningur einkavæði sjálfan sig og verði Almenningur hf. Almenningur fær þá samkvæmt hlutafélagalögum aðgang að fyrirtækjum sínum sem hluthafi. Þegar stjórnendur sem fara með hlutafé almennings (les: ráðherrar og annað stjórnvald) misfara með það fé er almenningur aðili máls og getur skipað sér sérstaka fulltrúa til að fara með málið fyrir dómsstóla.
Kómísk lausn vissulega en þessi leið hefur þegar verið farin að hálfu! Steingrímur Joð Sigfússon, alþingismaður gerðist hluthafi í Landssímanum hf sem var nær algjörlega í eigu ríkisins. Alþingismaðurinn gerðist hluthafi til þess að fá upplýsingar um starfsemi ríkisfyrirtækisins sem hann átti að gæta og hafa eftirlit með (en var lokað vegna viðskiptaleyndar).
Önnur lausn:Siðrænn forseti getur farið með málsóknarréttinn fyrir hönd almennings.