Leiðtogavald

Hanna Arendt er á því að það sé hópurinn sem skapi vald leiðtogans. Sambandið milli hópsins og leiðtogans er væntanlega díalektískt. Víxlverkandi. Leiðtoginn verður að vera traustsins verður og vera líklegur til að ná fram markmiðum hópsins.

Siðferði leiðtogans: Það er algengur misskilngur að hinn pólitíski leiðtogi vinni fyrst og fremst að eigin hagsmunum (og að þess vegna sé hann spilltur eða óspilltur). Leiðtoginn vinnur fyrst og fremst að hagsmunum hópsins sem hann deilir hugmyndum og hagsmunum með og er grundvölllur valds hans.