Valdajafnvægi - aðhald (eftirlit) - gegnsæi - upplýsing og opinber rökræða - skýr siðferðileg viðmið - hagsmunaaðskilnaður
1. Valdaójafnvægi - valdajafnvægi er mikilvægasta forvörnin gegn valdmisnotkun. Aðgreining milli framkvæmdavalds, þingvalds og dómsvalds er takmörkuð á Íslandi. Framkvæmdavald og ráðandi þingvald er í raun sama valdið og framkvældavaldið hefur nær ótakmörkuð tækifæri til að misnota ráðningar í Hæstarétt og Héraðsdóm.
2. Vald minnihluta þings er afar lítið. Minnihlutinn hefur engan möguleika á að þvinga fram rannsóknir á spillingu.
3. Fákeppni á fjölmiðlamarkaði og pólitísk yfirráð fjölmiðla - undirgefið fjórða vald.
4. Umbreytingartímabil ('state in transition') - einkavæðingar og umbreytingartímabil. Miklir fjármunir og völd færð frá ríki til einstaklinga.
5. Helmingaskiptaregla - löng forsaga kerfislægar spillingar á Íslandi.
6. Lönga saga spilltra ráðninga í æðstu embættum í ríkiskerfinu (sjá úttektir Gunnars Helga Kristinssonar).
7. Sögulega náið samband ráðandi valdhafa í viðskiptalífi og í helmingaskiptaflokkunum. (Kolkrabbi og Smokkfiskur).
8. Engar sérstakar áætlanir og aðgerðir stjórnvalda sem beinast að spillingu. (Sjá skýrslu Greco hópsins um Ísland).
9. Spilling skilin þröngum lagalegum og formlegum skilningi og margt þar með undanskilið (Sjá skýrslu Greco hópsins um Ísland).
10. Erlent fjárfesting lítil sem enginn - á þeim sviðum viðskiptalífsins sem marka valdkerfi stjórnmálaflokka (bankar,sjávarútvegur, tryggingar, olía, verslun, flutningar).
10.1 Erlendar fjárfestingar hindraðar í gegnum ólögmætt samráð (Tryggingar, olía, verslun ofl.)
11. Sami stjórnmálaflokkur ráðandi í ríkisstjórn í langan tíma ( nær tuttugu ár).
12. Gríðarleg völd eins stjórnmálaflokks svo leitun er að nokkru sambærilegu á vesturlöndum (Hér á ég við pólitísk völd í landsstjórn og sveitarfélögum, stofnanabundin völd Sjálfstæðisflokksins í stofnunum einsog Viðskiptaráði, LÍÚ og Samtökum Atvinnurekanda, blaðaútgáfu, ríkissjónvarpi, fjölda ríkisstofnanna, dómsstólum og jafnvel verkalýðshreyfingu (VR), að ótöldum sterkum tengslum við atvinnulífið að öðru leyti.
12.1. Samhliða sterku valdi Sjálfstæðisflokksins fer veiking hefðbundins mótafls (valdaafstæður) vinstri manna í verkalýðshreyfingu, meðal stúdenda, í menningu og fjölmiðlum og Háskóla (en þó styrking á allra síðustu árum í pólitísku mótstöðuafli).
13. Mikið vægi náttúruauðlinda í efnahagslífi þjóðarinnar (sem þó fór snarminnkandi á tímabili)
14. Óákveðið, óskýrt og stórpólitískt eignarhald á helstu auðlind (fiskur) og jafnvel auðlindum þjóðarinnar (vatnsorkuréttindi).
15. Takmörkuð þekking á spillingu og takmörkuð umræða um spillingu.
16. Mjög takmarkaðar sakarannsóknir á spillingu, nema grunsemdir sé um gróft lagalegt brot (sbr. t.d. mútumál Davíðs sem var ekki rannsakað).
17. Veikar eftirlitsstofnanir í langan tíma (til dæmis samkeppniseftirlit, en um tíma lýsti Samkeppnisstofnin sig sjálf óstarfhæfa.)
18. Ógrynni stórra spillingarmála sem hafa ýmist verið lítið eða ekkert rannsökuð og varða ýmist mikla fjármuni eða mikil völd eða hvoru tveggja (kvótinn, SR-Mjöl, Decode, einkavæðing bankanna, fjölmiðlamálið, mútumálið, sala Íslenskra aðalverktaka osfrv.)
19. Tilfærsla upplýsingagjafar frá ágætlega hlutlægri Þjóðhagsstofnin til pólitískra stofnanna og hlutdægra stofnanna fjármunalífsins. Lakari og hlutdrægari upplýsingar um efnahags- og félagsvísindi en í samanburðarlöndum (Stofnunar sérstakrar efnahagsdeildar fjármálaráðuneytisins og aukið hlutverk Hagfræðistofnunnar Háskólans og greiningardeilda bankanna.)
20. Fjármál stjórnmálaflokkana hafa lengstum verið lokuð almenningi og eru nú aðeins takmarkað aðgengileg.
21. Siðferðisreglur opinberra starfsmanna skortir.
22. Verðbréfamarkaður er nýstofnaður og fjármálamarkaður er nýfrjáls, ástæða er til að ætla að lagarammi utanum fjármálamarkaðinn sé enn vanþróaður og eftirlitstofnanir veikar.
23. Baugsmálið hefði átt að vekja efasemdir um saksóknaraembættið, dómstóla og lagaramma um íslenskt viðskiptalíf.
24. Tiltekið hugmyndafræðilegt, félagslegt og efnahagslegt ástand sem er þekkt úr sögu vestrænna ríkja og vitað að spilling er einn orsakavaldur eða afleiðing af slíku ástandi. Þjóðfélagsástandið einkennist af:
A. Nýfrjálshyggjuhugmyndafræði þar sem hugmyndir um að ósýnileg hönd stýri markaðnum til góðs. Ríkið eigi að hafa sem minnst eftirlit með markaðnum. Að eigendur fyrirtækja eigi að hugsa eingöngu um eiginn hagnað, en ekki hag samfélagsins.
B. Hópur ungs fólks kemst til valda í efnahagslífi og býr til reyfaralegt rúllettu samfélag ('casino economy') þar sem ákvarðanir eru teknar hratt, einstaklingar hafa mikil völd til sjálfstæðra ákvarðana (um útgjöld), áhættusækni þykir eftirsóknarverð en varkárni hallærisleg. Einstaka aðilar verða forríkir hratt og eru hafnir upp til skýjanna (Gatsby). Mikil samkeppni er um að ná samskonar árangri. Siðrof sem virðist m.a.a eiga upptök í því að græðgi er gerð æskileg (Gordon Gekko heilkennið) og eftirlitsstofnannir samsama sig andrúmsloftinu og hugmyndafræðinni veldur því að innherjaviðskipti eru tíð (menn eru sannfærðir um að vera ekki gripnir) og svindl til að hækka verð hlutabréfa algengt.
C. Verðbóla er gríðarleg og mikið peningamagn í umferð. Arðsemiskrafa er há. Mikið uppbrot er á eignarhaldi (samruni og niðurbrot) og strategísk valdabarátta. Skuldsetning er mikil. Launamunur eykst hratt.
25. Siðvenjur í íslenskum stjórnmálum styrkja ekki baráttu gegn spillingu og veita ekki aðhald. Mikið þarf til að stjórnmálamenn segi af sér.
26. Stjórnmálamenn sem eru staðnir að spillingu eiga auðveldlega afturkvæmt á þing (notað sem alþjóðlegur mælikvarði. Á Íslandi aðeins eitt dæmi: Árni Johnsen og því erfitt að draga ályktanir).
27. Flokkshollusta fólks í helsta valdaflokkinum virðist mikil (þó stærsti prófsteinninn sé enn óreyndur). Líkur á því að flokknum sé refsað eru því minni en ella
28. Fjölmiðlar á Íslandi eru fjárhagslega veikburða og hefð fyrir og þekking á rannsóknarblaðamennsku lítil.
29. Hlutafélagavæðing ríkisfyrirtækja (háeffun) lokaði upplýsingaflæði til stjórnarandstöðu og þingsins og veitti framkvæmdavaldi og einstaka ráðherrum mikil völd (ný upplýsingalög gerð ómerk í nafni viðskiptaleyndar).