Spillingarhugleiðingar dagsins - traust

Útkoma Íslands úr spillingarlista Transparency International átt að sýna, skv. Gunnari Helga Kristinssyni hið mikla traust sem hér ríkti manna á milli í samfélaginu og traust alþjóða samfélagsins á Íslandi. Gunnar Helgi tiltók sérstaklega hversu gott það væri fyrir tiltrú og traust á íslenskt efnahagslíf að fá góða útkomu á listanum.
Nú eru Íslendingar rúnir trausti á alþjóðavettvangi og traust almennings á stjórnmálamönnum og viðskiptalífinu reyndist á sandi byggt. Hvers virði var þá þetta traust og hvað merkti þetta traust sem spillingarlistinn átti að endurspegla? Traust byggir á trú og reynslu, en líka og það hunsaði Gunnar Helgi, valdbeitingu og blekkingum. Andrúm stöðugleika og fjarvera mótmæla getur verið önnur mynd sinnuleysis, ótta og meðvirkni. Þróað nútíma vald reynir að skapa sér ímynd heiðarleika, frjálslyndis og sátta. Almenn traustsímynd getur verið til marks um áhrifaríka valdastöðu og valdbeitingu - áhrifaríka blekkingu.

Svið rannsóknarinnar skiptir hér miklu. Þróað, áhrifamikið vald fjarlægir smátæka spillingu milli einstaklinga í viðskiptum og stjórnsýslu, enda hagnast stjórnvaldið sjaldnast á slíkri spillingu, því smátæk spilling grefur undan trausti og viðskiptum og skapar óstöðugleika. Á sama tíma og þróað vald skapar ímynd trausts, þá notar valdið þessa ímynd bæði erlendis og innanland til þess féfletta almenning. Það hefur nú gerst á Íslandi. Andrúm traustsins í íslensku samfélagi var ekki jákvætt, það var blekkjandi traust - forsenda meiriháttar féflettingar Auðtækniveldisins á almenningi.