Helstu eignir íslensku þjóðarinnar eru (eða voru):
1. Náttúruauðlindir: Fiskimið, vatnsorka
Nær allir nytjastofnar orðnir að eignaréttindum kvótaeigenda.
Ný vatnalög, túlka gömul lög um vatnsréttindi þannig að vatnsorkuréttindin tilheyri einnig landeigendum, þrátt fyrir að Landsvirkjun hafi haft einokunarrétt á nýtingu vatnsorku um áratugabil.
2. Ríkisfyrirtæki og sameignarfyrirtæki: Bankar, sparisjóðir, sameignarfyrirtæki (og svo ýmsar stofnanir).
Bankar seldir pólitískt tengdum aðilum fyrir lítið fé.
Sparisjóðir færðir í hendur stofnfjáreigendum og skuldbindingar gagnvart viðskiptavinum og samfélagi vanvirtar.
Sjóðir sameignarfélaga nýttir í þágu stjórnenda sjóðanna. Sjóðsfélagar fengu ekkert.
3. Mannauður: Menntun, mannafl.
Tilraun gerð til að koma persónulegum heilbrigðisupplýsingum í hendur einkaaðila (Decode).
4. Peningalegar eignir Seðlabanka
Glötuðust í endurhverfum viðskiptum við nýeinkavædda banka og fjármagnsfyrirtæki. Gjaldeyrisforðinn í hættu vegna mynthruns.
Arfleifð: Útgerðarfyrirtækin tæknilega gjaldþrota og skuldin lendir á nýjum ríkisbönkum. Orkufyrirtækin halda enn sjó, en eru stórskuldug. Bankarnir gjaldþrota