Spillingarlisti Transparency International (CPI) - hvað er hann í raun

Spillingarlistinn er framar öllu rannsókn á fjárfestingar- og lánsfjáráhættu alþjóðaauðvalds og hluti af víðtæku áhættumati Alþjóðabankans og stofnanna sem sinna fjárfestingarráðgjöf á alþjóðavettvangi. Spillingarlistinn er fyrst og fremst mæling á fjármálaspillingu í einstaka viðskiptum (business transactions) auðvalds við opinbera stjórnsýslu. Spillingarlistinn metur illa eða jafnvel alls ekki ákveðna tegund af pólitískri spilliingu, sem er stórtæk og einkennir stjórn nýfrjálshyggjunnar. Þess konar spilling er á mörkum stjórnmála og fjárplógsstarfsemi og byggir á samráði ráðandi afla í efnahagslífinu og æðstu stjórnenda í stjórnmálalífi og stjórnsýslu - við ákvarðanir er varða mjög mikla fjármunim (stórtæk spilling).

Vísindaheimspekin að baki spillingarlistans er undir áhrifum hagfræði og nýfrjálshyggju, en einnig pósitífisma og atferlisfræði (behavioralism, sálfr.) Hörmuleg ónákvæmni listans lýsir vel þeim vanda sem beiting stærðfræðilegra og náttúruvísindalegra aðferða veldur við rannsókn á félagslegum vandamálum.

Spillingarlistinn er náskyldur frelsislistanum svokallaða sem á að lýsa viðskiptafrelsi landa. [ath. link]