Öll framsetning á markaði og í stjórnmálum ber í sér tilhneigingu til blekkingar. Stærri og stærri hlutar mannlegs lífs eru á markaði og til sölu. Þegar hlutabréf fyrirtækja eru til dæmis til sölu, þá er bókhaldið markaðssett einsog allt annað. Gróðafíkillinn (nýfrjálshyggjumaðurinn) starfar á markaði, eftir eigin hagsmunum og hagnaðarútreikningum. Spillingarformúla gróðafíkilsins (ath. link) gildir því um hann.
(ath. formúlu) Spilling (blekking) =
Gróðafíkillinn svindlar og blekkir í réttu hlutfalli við möguleika hans til blekkinga og agóða af svikunum og blekkingunni. Því meira markaðsvald og pólitískt vald og gróðamöguleikar, þeim mun meiri líkur á blekkingum, svindli og spillingu. (lykilorð: Valdajafnvægi)
Öfugt við það sem haldið hefur verið fram, þá leiðir eftirlitsleysi með viðskiptamarkaði til aukinnar blekkingar, en ekki minni.
Inn í pósítífískum reiknimódelum nýfrjálshyggjunnar sem eiga að reikna út leiðina til hagsældar fyrir samfélagið (hin ósýnilega hönd) er ekki reiknað með skekkjum að völdum blekkinga (né valdskúgunar). Hin ósýnilega hönd er hönd ósýnilegs þorpara rétt einsog hún er hönd heiðarlega pulsusalans.
Samtök og samráð stór-auðvalds hafa aukist á meðan vald verkalýðsfélaga hefur minnkað. Dæmi: Samtök banka og fjármálafyrirtækja. Framkvæmdastjóri þess, Guðjón Rúnarsson (link) lék stórt hlutverk í þeim blekkingarleik sem hefur verið leikinn á Íslandi undanfarin ár. Blekkingin um 'hagnaðinn að utan' og afneitun þess að grunnurinn að ágóða bankanna og góðærinu á Íslandi væri 'carry-trade' viðskipti (lán í lágvaxtamynt og endurlán í hávaxta).
Blekkingin um góðærið: Inn í blekkingunni um góðærið (sem í Kópavogi hét 'uppgangur') var aldrei reiknað þeir okurvextir sem fólk var og er að greiða. Kaupmáttarútreikningar voru alltaf skekktir af þeim sökum.
Blekkingin um skattalækkanir: Tekjuskattar voru hækkaðir á þá lægst launauðustu en beinlínis logið til um það í fyrstu af Geir H. Haarde, en síðan viðurkennt af ÁRna Mathiesen og sett fram ný sem er rökfræðileg blekking og var á þá leið að ríkið hefði ekki hækkað á þá lægst launuðustu heldur hefðu laun hækkað og því sé fólk að borga hærri skatta!
Rökfræðileg blekking: Foucault (ath. vísun) sýndi fram á hvernig aðferðir nútíma valds eru lævískari og þróast í átt að blekkingum sem beitt er í gegnum retórík og hundalógík, en síður með aðferðum vanþróaðra valds sem setur atburði á svið (Hitler, upphaf innrásar í Tékkóslavakíu) eða lýgur beint um einstaka atvik.
Blekkingin um útrásina: Þagað var um geigvænlega erlenda skuldusöfnun (rétt einsog um skuldsetningu eftir kvótakerfið) og afleiðingar hennar og orsakir aldrei almennilega skýrðar. Hagnaðuruppruni af erlendum viðskiptum var alltaf loðin og óljós og svo má lengi telja.
Fjölmiðlavald (link) á Íslandi hefur um langa hríð verið nær allt í höndum Sjálfstæðisflokksins og auðvalds nátengdu honum.
Afnám Þjóðhagstofnunnar (link) og stofnun nýrra efnahagslegra áróðursstofnanna að hálfu ríkisins og Sjálfstæðisflokksins: Hagfræðistofnun H.Í. og hagfræðideild fjármálaráðuneytisins.
Möguleikinn til blekkinga á Íslandi hefur verið einstakur (samt fáum við æ ofan í æ alþjóðaskýrslur um að frelsi í fjölmiðlun sé mest á Íslandi). Það ætti því ekki að koma á óvart hversu blekkingin reyndist mikil.