Tækniauðveldið (Skylt technocratia)

Ríkjandi vald í vestrænum ríkjum.
Frægasti heimspekingur Finna: Georg Henrik Von Wright lýsti valdkerfi sem hann kallaði Tækniveldið (teknókratía) og er sambræðingur iðnaðar, vísinda og stjórnmála. Tækniveldið er vald utan og ofan þjóðríkja (lýðræðis) sem mótar og þróar þekkingu í þeim tilgangi að hámarka hagkvæmni og hagnað og eigið vald. Í tækniauðveldinu eru aðferðir kapítalískrar vísindahyggju (eða rökfræðilegs kapítalisma) allsráðandi.

Góðir stjórnunarhættir (good governance)

Ekki er sátt um skilgreiningu en lýsa má ákveðnum einkennum einsog:
Góðir stjórnarhættir virða réttarríkið;
eru gegnsæir,
ábyrgir,
bjóða öllum þátttöku,
beinast að sátt og málamiðlun,
bregðast við ábendingum og svara,
virða jafnrétti og eru óspilltir.

Góðir stjórnunarhættir miða að því að skapa traust á stjórnendum og að fá einstaklinginn til að laga sig að hugmyndum stjórnkerfisins með það að markmiði að auka hagkvæmni og áhrifamátt kerfisins. [Heimild: ÁM:17]

Stjórnunarhættir (governance) - viðmið spillingar.

Beiting pólitísks-, efnahagslegs- og stjórnsýsluvalds til að stjórna landi. Ferli, sem lýsir ákvörðunartöku og útfærslu ákvarðana. Oftar en ekki eru stjórnunarhættir metnir formlega eftir gæðum stofnanna, með sérstaka áherslu á efnahagsþætti (gæði efnahagslífs, frjáls markaðar). Mikið notað samhliða hugmyndum um efnahagsþróun og spillingu. Alþjóðabankinn horfir á spillingu í samhengi góðra stjórnunarhátta og efnahagsþróunar.
[Heimild: Alþjóðabankinn]

Siðferðileg spilling

Valdmisnotkun sem er andstæð góðri breytni. Siðferðisviðmiðið sem brotið er gegn getur verið viðmið sem telst sátt um í samfélaginu eða skráð/óskráð siðferðisregla.

Hvað er siðlaus pólitík ræðst af sýn manna á gott siðferði og gott samfélag og góða stórnsýslu. Varðar jafnt lýðræði, frelsi einstaklingsins og dreifiréttlæti. Það viðmið um góða stjórnsýslu sem Transparency International og Alþjóðabankinn notar heitir: Good governance (góðir stjórnarhættir)

Greinarmunur á siðferðilegri og lagalegri spillingu:

Lagaleg spilling

Misnotkun valds sem er brot á formlegri reglu sem er skrifuð í lög.
Greinarmunur á siðferðilegri og lagalegri spillingu:
Valdbeiting sem er lagabrot getur verið siðleg og ósiðleg valdbeiting getur verið lögleg.

Vildarvinaspilling (cronyism, fyrirgreiðsluspilling, kammeradderí (!) ):

Greiðar við aðila vegna þess að viðkomandi tilheyra sama hópi, t.d. pólitískum flokki, eða vinahópi. Reiknað er með að aðilar séu í einhverskonar félagslegu sambandi. Engin bein verðmæti fara á milli aðila. Greiðin er kannski endurgoldin síðar með t.d. stuðning við stjórnmálaflokk, en oftar en ekki er um hreina samtryggingu að ræða þar sem erfitt eða ómögulegt er að tengja tiltekinn greiða við tiltekna greiðslu eða einhverskonar þakklætisvott.
[Heimild: UTSTEIN]

Athuga: Crony capitalism

Mútur (bribery)

Að bjóða einhverjum verðmæti í því skyni að fá hann til að gera eitthvað (athöfn,ákvörðun) sem er brot á laga- eða siðferðisreglu.
[UTSTEIN]

Stórspilling (grand corruption).

Spilling sem varðar mikið fé eða afdrifaríkar athafnir fyrir almenning. Oft pólitísk spilling en getur vísað til stór fyrirtækja, ekki síst alþjóðlegra fyrirtækja. Stórspilling varðar ekki bara bein samskipti og hópa einsog smáspilling heldur líka strúktur samfélagsins og strúktúr breytingar. Það hvernig samfélög eru mótuð í þágu tiltekinna aðila.

Smáspilling (petty corruption)

Spilling í samskiptum einstaklinga þegar lítið fé er undir eða litlir hagsmunir. Á oft við skrifræðisspillingu, þ.e. spillingu lægra settra embættismanna. Dæmi: Mútur til lögregluþjóns vegna hraðasekta. Andstæða stórspillingar (grand corruption).
[Heimild: UTSTEIN]

Efnahagsspilling / viðskiptaspilling / fjármunaspilling

Varðar samskipti viðskiptalífsins við hið opinbera, gæði markaða og stjórnskipun landsins. Viðskiptaspilling fjallar um spillingu í viðskiptahreyfingum (business transactions). Efnahagsspilling fjallar til viðbótar um gæði markaða. [Heimild: UTSTEIN]
Fjármunaspilling nær yfir þá spilling einungis er varðar fjármuni og fjármunahreyfingar, en ekki til dæmis fyrirgreiðsluspillingu. [Heimild: Þorvaldur Gylfason]

Syndicate content