Spillingarlistinn sem þekkingarvald

Lykilspurning Foucaults varðandi þekkingu: Hverju og hverjum er verið að reyna að ná valdi yfir, með þróun viðkomandi þekkingar?

Spillingarlistinn er þróaður m.a. með það valdsmarkmiði í huga að móta samfélög þróunarlanda eftir hugmyndum World bank um góða stjórnsýslu (good governance) og jafnframt hugmyndum nýfrjálshyggjunnar um allsherjar einkavæðingu.

Vaxtaokur - hagfræði eða hagsmunir ráðandi aðila í efnahagslífi?

Seðlabankinn hélt stýrivöxtum mjög háum og vaxtamun milli Íslands og viðskiptalanda mjög miklum. Byggðust þær ákvarðanir á því að upphefja hagsmuni ráðandi aðila í efnahagslífi eða var ákvörðunin gerð með hagsmun almennings í huga? Hvoru tveggja ef til vill?

Afneitaði bankinn áhrifum 'carry trade' viðskipta á verðbólgu og skuldsetningu þjóðarinnar? Eða...?

Nátengd:
Af hverju er Ísland eina ríki vestræns heims sem hefur verðtryggingu lána fyrir reglu?
Af hverju var bindiskyldan lækkuð?

Merking spillingarlistans og breytileiki merkingar

Vísindalegar fullyrðingar byggja á ákveðnum forsendum sem oft eru duldar eða óljósar og oftar en ekki sleppt þegar niðurstöður eru endurteknar í sífellu í fjölmiðlum. Skilningur vísindamannanna (á niðurstöðum rannsóknanna) og fullyrðingar byggja á forsendunum og takmörkunum þeirra, en niðurstöðurnar fela ekki forsendurnar í sér.

Rof merkingar þegar vísindaniðurstöður eru einfaldaðar til kynningar fyrir almenning.

Ríkisbankar leggja fé í sjóði gjaldþrota banka gegn verðlitlum bréfum

06.11.2008

Nýju ríkisbankarnir leggja 200 milljarða inn í peningamarkaðssjóði Glitnis, Kaupþings og Landsbankans gegn verðlitlum bréfum. 'Óháðir aðilar' voru fengnir til að verðleggja bréfin, en talið er að miklu minni hefði fengist fyrir þau á markaði.

Verknaður einstaklings eða kerfislægur vandi (einstaklingur vs bygging)

Gjarnan heyrist að hrun íslensks efnahagslífs sé "20 til 30 einstaklingum að kenna", eins heyrist oft þegar spillingarmál koma upp að um "persónulegan harmleik" sé að ræða. Stjórnmálamenn eru þá að leggja áherslu á að flokkurinn beri ekki ábyrgð og spillingin sé ekki vegna þeirrar samfélagsgerðar sem þeir hafa mótað. Stórtæk pólitísk spilling er spilling sem býr í samfélagsgerðinni en ekki fyrst og fremst í persónugerð einstaklinga.

Hugmyndafræði og spilling

Hugmyndafræði lýsir hugmyndum fólks um hið góða samfélag. Í þeim skilningi er hugmyndafræði hugsjón. Hugmyndafræði getur líka verið eftiráskýring eða módel sem byggt er í kringum tiltekna hagsmuni. Nýfrjálshyggjunni er stundum lýst þannig að hún sé eftiráskýring eða tilbúið módel sem hámarkar hagsmuni fjármagnseigenda og þeirra ríkustu.

Hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar lék lykilhlutverk í spillingu (og efnahagshruni) á Íslandi frá 1991-2008 og einnig í (spillingu og efnahagshruni í) hinum vestræna heimi.

Kenning Transparency International um spillingu

Spilling er misnotkun opinbers valds í eigin þágu (eða þágu flokka eða hópa)

Þýðir í raun: Opinberu valdi skal beita í þágu almennings.

Gagnrýni á skilgreiningu:

1. Ber keim af einstaklingshyggjuskilgreiningu á spillingu, þar sem spilling er metin út frá athöfnum einstaklinga eingöngu, en ekki eftir því hvernig stjórnkerfi í heild eru mótuð og hvernig þau virka. (Ekki út frá strúktúr eða byggingu)
2. Hætt er við að spilling innan viðskiptalífsins eða óheiðarleiki almennt fólks á milli sé vanmetin eða ekkert metin.

Sjálfstæðisflokkurinn - vildarvinaklúbbur auðvaldsins

Flokkur auðvaldsins á Íslandi. Nýfrjálshyggjuflokkur síðustu áratugi. Hagsmunabandalag. Vildarvinaklúbbur auðvaldsins. Hugsanlega sá stjórnmálaflokkur í vestrænum heimi sem hefur haft mest völd í sínu heimalandi. Ræður nær öllum fjölmiðlamarkaðinum. Tök nýfrjálshyggjuflokks á verkalýðshreyfingu einsdæmi.

Eðlislægar eða kerfislægar spillingartilhneigingar stjórnkerfa

Kommúnískt valdkerfi hefur tilhneigingu til tiltekinnar tegundar einræðis-spillingar. Það er óumdeild. Eins hlýtur að vera um sérhvert stjórnkerfi. Það er innbyggt inn í kapítalískt hagkerfi að ráðandi aðilar í efnahagslífi þjóðarinnar eru stórfyrirtæki í eigu einkaaðila (auðvalds). Því sterkara sem auðvaldið er því sterkari er tilhneigiingin til tiltekinnar auðvalds-spillingar. Eins er um þriðju lausnina: Stjórnkerfi jafnaðarmanna.

Blekkingin

Öll framsetning á markaði og í stjórnmálum ber í sér tilhneigingu til blekkingar. Stærri og stærri hlutar mannlegs lífs eru á markaði og til sölu. Þegar hlutabréf fyrirtækja eru til dæmis til sölu, þá er bókhaldið markaðssett einsog allt annað. Gróðafíkillinn (nýfrjálshyggjumaðurinn) starfar á markaði, eftir eigin hagsmunum og hagnaðarútreikningum. Spillingarformúla gróðafíkilsins (ath. link) gildir því um hann.

(ath. formúlu) Spilling (blekking) =

Syndicate content